Við sjáum um þvott af öllum stærðum og gerðum, allt frá heimilisþvotti upp í sængur og koddaþvott. Hægt er að koma með þvott til okkar en eins bjóðum við upp á að sækja og senda þegar um mikið magn er að ræða. Við þjónustum t.d. mörg hótel með línþvott sem og sængur og koddaþvott en einnig fyrirtæki með þvott á alls konar rekstrarþvotti eins og t.d. tuskum og vinnugöllum svo eitthvað sé nefnt.
Verðskrá
Við þvoum þvott með öflugum vélum og gæða þvottalegi og þú færð hann hreinan, pressaðan og samanbrotinn í þínar hendur.
Við þjónustum bæði hótel og alls konar gistiþjónustu með bæði sængur- og koddaþvott sem og línþvott sem getur verið rúmföt, handklæði, sloppar og tuskuþvottur. Sækjum og sendum.