Tökum að okkur að þvo hvers kyns þvott er tengist rekstri fyrirtækja, allt frá ræstiþvotti í vinnugalla, sloppa og drullugalla eða hvað sem til fellur í rekstrinum hjá þér. Við gerum tilboð í hvert verk út frá umfangi og þess ber að geta að við bjóðum upp á að bæði sækja og senda ef um reglulegan þvott er að ræða.
Þvottahús Vesturlands getur sótt til þín þvottinn og þú færð hann til baka þveginn og samanbrotinn. Einfaldara getur það ekki orðið. Það eina sem þú þarft að gera er að hafa samband og fá tilboð í þinn þvott.

Hér fyrir neðan getur þú sent okkur línu með lýsingu á hvernig þvott um er að ræða. Gott er að láta fylgja hversu ört þarf að þvo og sirka hve mikið magn í einu og hvort þú viljir þvottinn sóttan og sendan sem og staðsetningu.

Við sendum þér tilboð í verkið og ef samþykkt, göngum við frá samningum.

Við sjáum um rekstrarþvottinn þinn samkvæmt þeirri áætlun sem þú valdir þér.
Einfaldaðu þér rekstrarumhverfi þitt og tryggðu að rekstrarþvottur þinn sé reglulega sóttur, þveginn og skilað samabrotinn og skínandi hreinn. Þannig ertu ávalt reiðubúinn til góðra verka.