Við gerum okkar besta í að veita faglega og snögga þjónustu. Að öllu jafna tökum við okkur 48 klst í verkið en leggjum okkur fram við að redda fólki á skemmri tíma í neyðartilfellum.
Opið er alla virka daga frá kl. 8:00 - 16:00. Ef komið er á staðinn má gera ráð fyrir að fötin geti verið tilbúin 48 klst. seinna.
Við sækjum og sendum víðsvegar um Vesturland. Einnig á Akranes. Í þessari þjónustu má gera ráð fyrir viku í afhendingartíma frá því að föt eru sótt.
Við bjóðum einnig upp á þvottaþjónustu bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.